Mokveiði á strandveiðum

Deila:

Óhætt er að segja að strandveiðin hafi byrjað með látum í gær. Heildarafli þorsks var var 313 tonn en samtals lönduðu 403 bátar. Meðalaflinn var því 776 kg eða tveimur kílóum umfram leyfilegan hámarksafla. Margir bátar lönduðu yfir 800 kílóum en þrír bátar, á Skagaströnd, Djúpavogi og Patreksfirði, lönduðu ríflega tonni fyrsta daginn. Fyrir umframaflann fæst lítið sem ekkert.

Bátafjölda er mjög misskipt milli svæða að þessu sinni. 220 bátar lönduðu á svæði A í gær en 54 á svæði B. Á svæði C landaði 31 bátur en á svæði D 98. 55% bátanna sem landaði í gær réri á svæði A.

576 bátar eru komnir með leyfi til strandveiða, þar af 301 á svæði A.

Meðalverð á þorski á mörkuðum í gær var 404 krónur, fyrir óslægðan fisk.

 

Deila: