Aukin framleiðsla en minni tekjur

Deila:

Rekstrartekjur samstæðu Síldarvinnslunnar á árinu 2017 voru alls 18,5 milljarðar króna (samanborið við 22,5 milljarða árið 2016) og rekstrargjöld námu 13,8 milljörðum króna.  EBITDA var 4,7 milljarðar króna.   Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 122 milljónir króna. Hagnaður samstæðunnar fyrir reiknaða skatta nam 3,5 milljörðum króna (samanborið við 6,2 milljarða árið 2016). Reiknaður tekjuskattur nam 630 milljónum króna og var hagnaður ársins því 2,9 milljarðar króna.  Þetta kom fram á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í gær.

Gjöld til hins opinbera

Á árinu 2017 greiddu Síldarvinnslan og starfsmenn 4,5 milljarða króna  til hins opinbera. Greiddur tekjuskattur var 1.320 milljónir króna og veiðigjöld voru  530 milljónir. Starfsmenn fyrirtækisins greiddu tæpar 1.200 milljónir í staðgreiðslu af launum. Þá voru kolefnisgjöld 170 milljónir króna.

Fjárfestingar

Samtals námu fjárfestingar félagsins 850 milljónum króna og voru þær þáttur í að auka verðmætasköpun félagsins. Helstu fjárfestingarnar í fastafjármunum voru áframhaldandi uppbygging í uppsjávarvinnslu félagsins.

Í lok síðasta árs var samið við skipasmíðastöðina VARD Aukra í Noregi um smíði á tveimur nýjum 29 metra togskipum sem myndu leysa Vestmannaey og Bergey af hólmi. Áætlað er að smíði hvors skips taki 14 mánuði og er gert ráð fyrir að fyrra skipið verði afhent okkur í marsmánuði 2019 og hið síðara tveimur mánuðum síðar.

Á árinu var togarinn Barði NK seldur til Rússlands.  Salan á Barða og Bjarti árið 2016 er liður í endurnýjun ísfisktogaraflota Síldarvinnslunnar.

 Efnahagur

Heildareignir samstæðunnar í árslok 2017 voru bókfærðar á 51,4 milljarða króna. Veltufjármunir voru bókfærðir á 9,7 milljarða króna og skuldir og skuldbindingar samstæðunnar námu 18,5  milljörðum króna. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 32,9 milljarðar króna.   Í árslok var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 64%.

Starfsemi

Útgerð félagsins gekk vel á árinu. Afli bolfiskskipa samstæðunnar var um 20.000 tonn að verðmæti 4,6 milljarður króna. Afli uppsjávarskipa var 143 þúsund tonn að verðmæti 3,7 milljarðar. Heildaraflaverðmæti afla skipanna var 8,3 milljarðar króna og aflamagn 163.000 tonn á árinu.

Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar tóku á móti um 197 þúsund tonnum af hráefni á árinu 2017. Framleidd voru 40 þúsund tonn af mjöli og 11 þúsund tonn af lýsi. Samtals voru framleidd 51 þúsund tonn af mjöli og lýsi á árinu að verðmæti 7,3 milljarðar króna.

Í uppsjávarvinnsluna var landað 47 þúsund tonnum af hráefni. Framleiddar afurðir voru tæp 39 þúsund tonn. Þar vega síldarafurðir þyngst og síðan makrílafurðir og loks loðnuafurðir.  Verðmæti framleiðslunnar var 5,6 milljarðar króna.

Um frystigeymslurnar fóru 64 þúsund tonn af afurðum á árinu.

Samtals nam framleiðsla á afurðum rúmum 105 þúsund tonnum á árinu 2017 að verðmæti 16,3 milljarðar króna.

Ef árið er borið saman við árið á undan, var framleiðsluaukning 16% en á sama tíma samdráttur í tekjum um 11%.  Þannig var um 25% verðlækkun að meðaltali á afurðum að ræða.  Sömu sögu er að segja af útgerðinni þar var 18% aukning í aflamagni en 14% samdráttur í aflaverðmætum skipanna.

Starfsmenn

Hjá samstæðu Síldarvinnslunnar störfuðu 360 manns til sjós og lands um síðustu áramót. Launagreiðslur félagsins voru rúmar 3.700 milljónir króna á árinu 2017 en af þeim greiddu starfsmenn tæpar 1.200 milljónir í skatta.

Aðalfundur

Á fundinum var samþykkt að greiða 0,53 krónur  á hlut í arð til hluthafa fyrir rekstrarárið 2017. Skal miða arðgreiðsluna við kaupgengi Seðlabanka Íslands á aðalfundardegi. Greiðsla arðsins fer fram 28. mars 2018. Þá var samþykkt að stjórnarlaun yrðu 175 þúsund kr. á mánuði.

 

Deila: