Enn berst kolmuni að landi

Deila:

Grænlenska skipið Polar Amaroq kom til hafnar á Neskaupstað á föstudag með enn einn kolmunafarm vertíðarinnar. Rætt er við Sigurð Grétar Guðmundsson skipstjóra, á vef Síldarvinnslunnar. Hann segir að veiðin sé farin að tregðast. „Við fengum aflann í sjö holum en veiðin hefur mikið minnkað frá því þrgar hún var mest. Holin voru miklu lengri nú en fyrr á vertíðinni eða frá sex og upp í átján tíma. Fiskurinn er að ganga í norður og er að dreifa sér. Það var blíðuveður allan túrinn og alls engin ástæða til að kvarta undan veðrinu. Þetta er okkar síðasti túr að sinni en við ætlum að geyma restina af kvótanum og taka eina tfvo túra í haust. Næst á dagskrá er að hefja undirbúning makrílvertíðar. Kolmunnaveiðin að undanförnu hefur verið einstaklega góð og ég hef aldrei kynnst slíkri veiði áður. Við höfum landað aflanum í Skagen í Danmörku og hjá okkur hefur mun meiri tími farið í löndunarbið þar en í veiðar. Við höfum oftast þurft einungis tvo sólarhringa til að fylla bátinn,“ er haft eftir Sigurði.

Polar Amaroq er í eigu fyrirtækisins Polar Pelagic sem er að hluta í eigu Síldarvinnslunnar. Hitt skip fyrirtækisins, Polar Ammassak, er nú í slipp í Frederikshavn í Danmörku.

Deila: