Fundu hvergi ufsa en lönduðu ýsu

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði sl. miðvikudag að aflokinni fimm daga veiðiferð, að því er fram kemur í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var 117 tonn, að uppistöðu ýsa.

Blíða var á miðunum allan túrinn, að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar.

„Við hófum veiðar í Berufjarðarálnum en síðan var mest veitt á Papagrunni. Eins og oft áður leituðum við að ufsa. Segja má að allar nætur hafi farið í ufsaleit með litlum árangri. Það virðist einfaldlega vera afskaplega lítið af honum á ferðinni, allavega var það þannig í þessum túr. Að öðru leyti aflaðist vel,” segir Hjálmar Ólafur.

Gullver hélt á ný til veiða fljótlega eftir að löndun lauk.

Deila: