Vilja hneppa tvo í farbann

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lagt fram kröfu um að tveir karlmenn úr áhöfn flutningaskipsins sem talið er hafa lent í árekstri við Sómabát í liðinni viku verði hnepptir í farbann. Mannbjörg varð þegar smábátnum hvolfdi en skipið sigldi á brott.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að til að tryggja rannsóknarhagsmuni hafi þeir verið handteknir í Vestmannaeyjum við komu skipsins þangað. Fyrstu skýrslutökur hafi farið þra fram að beiðni embættisins.
Mennirnir voru því næst fluttir til Suðurnesja þar sem þeir voru vistaðir þar til unnt var að færa þá fyrir Héraðsdóm Suðurnesja.
„Rannsókn lögreglu miðar ágætlega, en gagnaöflun og skýrslutökur standa enn yfir. Ummerki eru eftir ákomu á báðum sjóförunum sem þykir styrkja mjög grun lögreglu um árekstur sem orsök þess að bátnum hvolfdi. Rannsókn lögreglu miðar m.a. að því að upplýsa með hvaða hætti það atvikaðist. Héraðsdómur Suðurnesja hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans og hafa mennirnir verið úrskurðaðir í 4 vikna farbann. Annar þeirra hefur þegar kært úrskurðinn til Landsréttar,” segir í tilkynningu embættisins.
Myndin er af sómabátnum í Sandgerðishöfn. Báturinn var dreginn til hafnar.