Strandveiðum lýkur að óbreyttu 3. júlí

Deila:

Ef heldur sem horfir verður síðasti dagur strandveiða á þessu tímabili miðvikudagurinn 3. júlí. Þetta má ráða af framvindu veiðanna til þessu. Meðalþorskveiði strandveiðiflotans á dag fyrstu 11 daga vertíðarinnar voru 299 tonn á landsvísu.

Ef framgangur veiðanna verður áfram með sama hætti verður veiðum lokið í fyrstu viku júlímánaðar, eða eftir 33 strandveiðidaga. Hver bátur hefur þá að hámarki getað nýtt 27 veiðidaga.

Veður hefur sett strik í aflabrögð í maí auk þess sem nokkur fjöldi báta sem nú er með veiðileyfi var ekki með veiðileyfi í fyrstu viku strandveiða. 709 bátar eru nú með leyfi til strandveiða en þeir voru 552 á fyrsta degi. Meðalafli á dag mun þannig sennileag hækka. Eins getur potturinn klárast fyrr ef tíðin batnar þegar lengra kemur inn í sumarið.

Á móti getur komið að ráðherra bæti við strandveiðipottinn með einhverjum hætti, eins og dæmi eru um. Þá getur veðurfar vitanlega haft áhrif á meðalafla á dag í báðar áttir.

Eins og sést á meðfylgjandi gröfum hefur A-svæði veitt 53% þess afla sem á land hefur komið. Þriðjungur þorskaflans hefur þegar verið veiddur.

Deila: