Nær hálfur potturinn veiddist í maí

Deila:

Maímánuði er lokið á strandveiðum. Samkvæmt gögnum Fiskistofu er búið að veiða 45,25% af þeim heimildum í þorski sem strandveiðiflotanum hefur verið úthlutað. Sjö bátar náðu alltaf skammtinum í sínum róðrum en 182 bátar náðu alltaf 750 kílóum af þorski eða meira. Í þeim meðaltölum er búið að afmá umframafla, en flotinn veiddi samtals 86 tonn í umframafla í maímánuði. Það gerir um 111 skammta.

Veiðin var að venju best á A svæði í maí, ef aðeins er horft á þorsk. Á A-svæði var meðalvigt í maí 695 kíló, þegar búið er að taka út umframafla, ufsa og aðrar tegundir. Þegar allur afli er veginn reyndist veiðin mest á D-svæði, en þar er ufsi tíður meðafli.

Sjö hafnir skera sig úr hvað aflabrögð varðar í þorski í maímánuð. Þær eru allar á svæði A eða vestast á svæði B, nema Djúpivogur, sem er syðst á C-svæði.

Eins og áður segir hefur tæplega hálfur potturinn verið veiddur. Ef mið er tekið af fjölgun báta, eftir því sem liðið hefur á maímánuð, er ljóst að líklegt þykir að strandveiðum ljúki fyrir næstu mánaðamót. Jafn margir bátar lönduðu í maímánuði 2023 og 2024, eða 707 talsins.

Um 900 tonn veiddust á mánudag og þriðjudag í þessari viku, samanlagt en það eru langstærstu dagarnir í maímánuði. Á hinn bóginn er veðurútlit fyrir næstu viku ákaflega tvísýnt.

Tölfræði fyrir maímánuð má sjá hér að neðan.

Meðfylgjandi mynd er frá löndun í Sandgerðishöfn.

Deila: