Forsetinn heiðraður á sjómannadaginn

Deila:

Haldið var upp á sjómannadaginn 2024 samkvæmt venju. Dagurinn hófst á minningarathöfn við Fossvogskirkju, þar sem sjómanna sem farist hafa við störf á sjó var minnst. Að þeirri athöfn lokinni var haldið í sjómannamessu í Dómkirkjunni. Síðar um daginn voru sjómenn heiðraðir við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þetta kemur fram á vef sjómannadagsráðs.

Vegna eldgosa við Grindavík, bauð Sjómannadagsráð Grindvíkingum að taka þátt í hátíðarhöldunum í Reykjavík og voru því tíu sjómenn heiðraðir við athöfnina í Hörpu. Það eru:

  • Ragnar Blöndal Birgisson
  • Sigurdór Friðjónsson
  • Guðmundur Haraldsson
  • Jóhannes Ellert Eiríksson
  • Brynjar Viggósson
  • Magnús Viðar Helgason

Frá Grindavík:

  • Ármann B. Brynjarsson
  • Njáll Þorbjarnarson
  • Jóhanna A. Sigurðaradóttir
  • Hólmgeir Jónsson

Að lokum var fráfarandi forseti Guðni Th. Jóhannesson skrýddur heiðursorðu Sjómannadagsráðs sem þakklætisvottur fyrir sýndan hlýhug og velvild í garð sjómanna á öllu landinu. Einnig var honum færð afsteypa af styttunni Horft til hafs eftir Inga Þ. Gíslason.

Deila: