Vantrauststillaga lögð fram í dag

Vantrauststillaga Miðflokksins á hendur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra verður tekin fyrir á Alþingi í dag. Það er gert vegna ákvörðunar ráðherra að draga útgáfu hvalveiðileyfis í fjóran og hálfan mánuð. Þingfundur hefst í dag klukkan tvö eftir hádegið.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins hyggjast styðja tillöguna.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að af þessum sökum verði 200 félagsmenn af miklum tekjum. Hann hefur látið hafa eftir sér að hver starfsmaður hafi um tvær milljónir á mánuði á meðan vertíðin stendur.