Leita sérfræðings á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis

Deila:

Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir sérfræðingi til þess að starfa við fjölbreytt verkefni tengdum umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. Starfið felur í sér rannsóknir og vöktun á umhverfi og lífríki fjarða ásamt úrvinnslu gagna, túlkun þeirra og miðlun. Starfsstöð getur verið í Hafnarfirði, á Ísafirði eða Neskaupsstað. Frá þessu greinir á vef Hafró.

„Ásamt því að vakta umhverfisáhrif sjókvíaeldis á firði metur Hafrannsóknastofnun burðarþol fjarða og gefur álit í tengslum við leyfisveitingar í sjókvíaeldi. Þessi verkefni og önnur sem stofnunin sinnir tengjast og er gert ráð fyrir að nýr sérfræðingur geti tekið þátt í þeirri þverfaglegu teymisvinnu sem á sér stað innan stofnunarinnar.”

Nánar hér.

Deila: