Tvær vikur til stefnu á strandveiðum

Strandveiðiflotinn landaði um 9600 tonnum af fiski í maí og júní, samkvæmt gögnum Fiskistofu. Þar af voru um 9000 tonn af þorski. Eins og kunnugt er bætti matvælaráðherra 2000 tonnum við pottinn fyrir helgi. Þannig er útlit fyrir að veiðum ljúki um miðjan júlí. Að öðrum kosti hefði miðvikudagur þessarar viku að öllum líkindum orðið síðasti veiðidagur þessarar vertíðar.
Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi hefur veiðin verið nokkuð jöfn yfir vertíðina. Á góðviðrisdögum koma á bilinu 350-490 tonn að landi. Langvarandi bræla og hret um mánaðamótin setti strik í reikninginn, eins og grafið sýnir glöggt.
Um 410 tonn hafa að jafnaði komið að landi síðustu 11 daga, eða frá því brælunni lauk á dögunum. Ef sú þróun heldur áfram eru sjö til átta veiðidagar eftir, að deginum í dag meðtöldum. Strandveiðum gæti þannig lokið í lok næstu viku, 11. júlí, ef ekki dregur úr veiði. Tvær vikur eru að óbreyttu til stefnu.
753 bátar hafa landað afla á strandveiðum á vertíðinni. Í fyrra voru bátarnir sem lönduðu 750. Liðlega helmingur bátanna er á svæði A.