Níu störf orðin til á Djúpavogi

Deila:

Níu störf eru orðin til á Djúpavogi við fóðrun í fiskeldi á Austfjörðum og annarri umsjón með vexti fiskanna. Frá þessu er greint á vefnum Austurfrétt. Þar segir að ný starfsaðstaða hafi verið tekin í notkun fyrir helgi. Fram kemur að hún sé í gömlu sláturhússréttinni á Djúpavogi en þar var áður geymslusvæði fyrir Búlandstind.

Fiskeldi Austfjarðar og Laxa Fiskeldi sameinuðust fyrr á árinu undir nafninu Kaldavík. Í aðstöðunni eru fjögur skrifborð og pláss fyrir það fimmta. Tveir menn deila hverju borðin því menn ganga 12 tíma vaktir. „Frá árinu 2020 hefur fjölgað um eina vakt, eða tvo starfsmenn, á hverju ári. Við erum núna alls níu sem vinnum við fóðrunina, átta starfsmenn og ég sem verkstjóri,“ hefur Austurfrétt eftir Birgi Thorberg Ágústssyni, deildarstjóra fóðrunar hjá Kaldvík.

Deila: