Glettinganesflak skilaði góðum afla

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu í Neskaupstað í fyrradag að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Skipin voru hvort um sig með 50 til 60 tonn af afla, aðallega þorskur.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagir við vefinn að einungis hafi verið stoppað í rúmlega 50 tíma á miðunum.

„Við héldum beint á Glettinganesflak frá Eyjum og vorum þar. Veður var þokkalegt í upphafi en síðan var það hundleiðinlegt. Við munum halda til veiða strax að löndun lokinni,” sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að túrinn hafi byrjað í ufsaleit. „Við könnuðum hvort væri ufsi í Reynisdýpi og á Mýragrunni en það skilaði hverfandi árangri. Þá var haldið á Glettinganesflak en frést hafði af góðum afla þar. Þegar við komum þangað hafði veiðin minnkað og var í rólegri kantinum. Fiskurinn sem þarna fékkst var hins vegar fínn og hentar örugglega vel til vinnslu. Við munum halda til veiða þegar lokið verður við að landa og við sjáum til hvert verður farið,” er haft eftir Jóni.

Deila: