Óvenjulegt háttalag grindhvala við Álftafjörð

Á vef Hafró segir frá einkennilegu háttalagi vöðu grindhvala í innanverðum Breiðafirði í sumar. Tveir starfsmenn Hafró í sumarleyfi voru í kajakferð í innanverðum Breiðafirði við mynni Álftafjarðar, þegar hópur grindhvala kom syndandi að þeim. Þetta voru um 20 dýr og talið að þau hafi borist með aðfallsstraumi um sund inn fyrireyjaklasa í mynni Hvammsfjarðar. Ákveðið var í samráðu við Náttúrufræðistofu Vesturlands að fylgjast með dýrunum en árið 2020 strönduðu og drápust 10 dýr í Álftafirði og 50 á Löngufjörum.
Atferli hvalanna er svo lýst á vef Hafró: „Hvalirnir héldu sig mjög þétt og blésu mikið. Þeir virtist hafa mikil samskipti sín á milli með snertingu og hátíðnihljóðum og einstaka sinnum komu hressileg prumphljóð. Yfirleitt voru einn eða nokkrir hvalir með höfuðið vel upp úr sjónum þegar þeir voru í hnapp. Hægt er að hlusta á grindhvali hér á heimasíðu NOAA. Öðru hverju var eins ókyrrð kæmi á hópinn og þeir syntu með látum og buslugangi fram og til baka og það atferli endaði svo með því að hvalirnir syntu í hringi á litlu svæði og enduðu svo aftur saman í hnapp.”
Fram kemur að fylgst hafi verið með hvölunum allan daginn og fram að kvöldi. Dagana á eftir var víða róið um eyjarnar en hvalirnir virtust á bak og burt. Myndband af hátterni þeirra má sjá hér.
Á vefnum segir : Grindhvalir halda sig öllu jöfnu í úthafinu í Norður-Atlantshafi, allt frá Spáni norður til Grænlands, en miðja útbreiðslunnar er á milli Íslands og Grænlands á sumrin. Á veturna færa þeir sig sunnar og þá er miðja útbreiðslunnar við Skotland og Írland. Grindhvalir lifa aðallega á smokkfiskum og kolkröbbum, en einnig á fiski eins og gullaxi og kolmunna. Þeir eru ein algengasta hvalategundin í Norður-Atlantshafi og er stofninn talinn vera um 400.000 dýr. Þeir sjást yfirleitt í stórum hópum, þar sem tugir eða hundruð dýra af báðum kynjum ferðast um saman. Hóparnir eru yfirleitt tengdir í kvenlegg. Ekki er vitað hvað hvalirnir voru að gera í innanverðum Breiðafirði, en töluvert er um að hópar strandi og hafa um 280 grindhvalir strandað í hópströndum síðan 1982. Þar spilar hóphegðun þeirra inn í, þar sem þeir halda hópin jafnvel þótt að einhver dýr séu í hættu.