Bjarkey boðar til Matvælaþings

Deila:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra boðar til Matvælaþings 2024 sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu 5. nóvember n.k.

Frá þessu greinir á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að frá upphafi hafi Matvælaþing verið vettvangur fyrir skoðanaskipti og samræðu á milli þeirra mörgu og ólíku starfsgreina sem vinna að matvælaframleiðslu og -vinnslu á Íslandi. „Þingið sameinar framleiðendur, neytendur og stjórnvöld í þeim tilgangi að vinna að sameiginlegu markmiði, sjálfbærri matvælaframleiðslu í hæsta gæðaflokki.”

Fram kemur að dýravelferð og hugmyndinafræðin Ein heilsa (e. One Health) séu meginviðfangsefni þingsins sem er nú haldið í þriðja sinn. „Í störfum sínum hefur matvælaráðherra lagt aukna áherslu á ábyrgt dýrahald og velferð dýra með hliðsjón af hugmyndafræði Einnar heilsu þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina órofa heild. Dýravelferð er mikilvægur hluti þeirrar stefnu og samræmist markmiðum laga um velferð dýra sem eru að dýr séu laus við vanlíðan, hungur, þorsta, ótta, þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma í ljósi þess að þau séu skyni gæddar verur. Ennfremur er það markmið laganna að dýr geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.”

Deila: