Líf að færast í Grindavíkurhöfn á nýjan leik

Deila:

Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík.

„Ég skynja að opnun bæjarins og koma nýja togarans Huldu Björnsdóttur GK auka verulega bjartsýni Grindvíkinga. Við göngum út frá því að hjólin í sjávarútveginum og tengdri þjónustu í bænum fari að snúast hraðar á næstu vikum og mánuðum og vonandi verður allt komið á fulla ferð á eftir áramót,“ segir Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík, aðspurður um stöðuna í hafnarstarfseminni nú þegar ár er liðið frá lokun bæjarins vegna jarðhræringa.

Hafnarstarfsmenn í verkefnum í Hafnarfirði og Þorlákshöfn

Hjá Grindavíkurhöfn eru þrír starfsmenn auk hafnarstjóra en engum starfsmanni var sagt upp þrátt fyrir að hafnarstarfsemin hafi verið í lágmarki meðan mest gekk á. Sigurður segir að hafnarstarfsmennirnir hafi verið tímabundið í störfum hjá höfnunum í Þorlákshöfn og Hafnarfirði en margar útgerðir í Grindavík hafa landað á þessum stöðum síðasta árið. Smátt og smátt hefur svo líf verið að aukast í Grindavíkurhöfn síðustu vikur og mánuði og verkefnum hafnarstarfsmanna fjölgað. „Haustin eru yfirleitt rólegri tími hjá okkur og þá sinnum við ýmsum viðhaldsverkefnum og þannig er það núna,“ segir Sigurður.

Sig í höfninni og skemmdir á einum hafnargarði

Í hluta Grindavíkurhafnar seig botninn talsvert í kvikuhlaupinu og vegna jarðsigs segir Sigurður nauðsynlegt að hækka flóðvarnir hafnarinnar. Ef frá er talin skemmd á Eyjabakka segir Sigurður að hafnarmannvirkin hafi sloppið vel frá jarðhræringunum og að ekkert sé því til fyrirstöðu að veita viðskiptavinum hafnarinnar fulla þjónustu örugga þjónustu.

Nánar er fjallað um málefni hafnarinnar í nýju tölublaði Sóknarfæris.

Deila: