Fyrsta nýsmíði Þorbjarnar í rúmlega hálfa öld

Deila:

Sjávarútvegsfyrirtækið Þorbjörn hf. í Grindavík tók á dögunum við nýju og glæsilegu togskipi sem smíðað var í skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni en samið var um smíðina á útmánuðum árið 2022. Skipið ber nafnið Hulda Björnsdóttir GK-11 en Hulda var eiginkona Tómasar Þorvaldssonar, útgerðarmanns og stofnanda Þorbjarnar árið 1953.

Koma Huldu Björnsdóttur GK-11 er ekki síst merkilegur áfangi fyrir þær sakir að um er að ræða fyrstu nýsmíði fyrirtækisins frá árinu 1967 en skipið er hönnun frá Skipasýn ehf.

Stór og hæggeng skrúfa

Hulda Björnsdóttir GK-11 er 58 metra langur togari og 13,6 metra breiður. Skipið er 1890 brúttótonn og 560 nettótonn að stærð. Aðalvél skipsins er af gerðinni MAN 7L27/38 og skilar hún 2380kW afli. Gír skipsins er af gerðinni Rintjes og í skipinu eru tvær ljósavélar frá Scania sem Klettur er umboðsaðili fyrir hér á landi. Stýrisbúnaður er frá Hidramarin. Skrúfa skipsins er fimm metrar í þvermál og hæggeng.

Skipið getur togað með tveimur trollum samtímis en vindur skipsins eru frá Ibercisa og frá sama framleiðanda er löndunargálgi skipsins. Umboðsaðili Ibercisa hér á landi er Marás. Vindustjórnkerfið er frá Scantrol og aflanemakerfi skipsins er frá Marport. Á milliþilfari er vinnslubúnaður frá fyrirtækninu Micro ehf. og í lest er fjarstýrður hlaupaköttur í lofti til að raða körum á veiðum og við löndun. Kældur afli er því settur í kör á vinnsluþilfari áður en hann fer í lest en slíkt fyrirkomulag má segja að sé orðið algilt í stærri nýjum togskipum í dag.

Ítarlega er rætt um nýja skipið í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.

Deila: