Cleopatra 36 til Noregs

Deila:

Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni.  Tor Øyvind verður skipstjóri á bátnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Trefjum.

Um er að ræða 11 metra bát sem mælist 11 brúttótonn. Báturinn er búinn aðalvél af gerðinni Scania D9, sem er 400 hestöfl. Hann er með siglingatækjum frá JRC, Olex og Simrad. Vökvadrifnar hliðarskrúfur eru á bátnum, að aftan og framan, en þær eru tengdar sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er búinn til línuveiða en lestin rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur þegar hafið veiðar.

Deila: