Mikil vinnsla hjá Síldarvinnslunni

Á vef Síldarvinnslunnar eru birtar tölur yfir unnin afla á árinu 2024. Fram kemur að loðnuna hafi vantað auk þess sem í Grindavík hafi starfsemin riðlast verulega vegna náttúruhamfara.
Fiskiðjuverið í Neskaupstað tók á móti 58 þúsund tonnum á árinu. Þar af var síld tæp 36 þúsund tonn og makríll um 20 þúsund tonn. Svolítil loðna barst frá norskum skipum.
Fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði tóku samtals á móti 177.700 tonnum. Á Seyðisfirði var aðeins unninn kolmuni, 52 þúsund tonn en í Neskaupstað voru unnin 93 þúsund tonn af kolmuna, 13 þúsund tonn af makríl og 18 þúsund tonn af síld, svo það helsta sé nefnt.
„Tekið skal fram að engum makríl og engri síld var landað beint í fiskimjölsverksmiðjuna í Neskaupstað heldur kom það hráefni frá fiskiðjuverinu og var einungis fiskur sem flokkaðist frá við manneldisvinnsluna og afskurður,” segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.
Loks segir að saltfiskur hafi verið unninn úr tæplega 7.300 tonnum hjá Vísi, aðallega úr þorski, löngu, keilu og ufsa. „Unnið var úr tæplega 5.300 tonnum í salthúsinu í Grindavík og úr 2.000 tonnum í Helguvík en þar var saltað á meðan ekki var unnt að halda úti starfsemi í Grindavík. Vinnslan í Helguvík fór fram á tímabilinu febrúar – maí. Í frystihúsi Vísis var starfsemin mjög slitrótt á árinu vegna náttúruhamfaranna en tekið var á móti 4.300 tonnum til frystingar.”