Loðnuveiðar ráðlagðar eftir allt saman

Hafró hefur gefið út uppfærða ráðgjöf til loðnuveiða á fiskveiðiárinu. Ráðgjöfin hljóðar upp á 8.589 tonn. Fram kemur í frétt á vef Hafró að meira magn loðnu hafi mælst fyrir norðvestan land nú í febrúar en í janúarmælingum stofnunarinnar. Það sé ástæða þess að ráðgjöfin sé nú gefin út.
„Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, ásamt uppsjávarveiðiskipunum Polar Ammassak og Heimaey hafa verið við loðnumælingar norður af Íslandi síðan 8. febrúar (mynd 1). Ekkert var að sjá af fullorðinni loðnu á yfirferðasvæði veiðiskipanna tveggja meðan tæp 98.2 þúsund tonn mældust á Árna Friðrikssyni norðvestan við land (mynd 2). Í janúar mældust um 180 þúsund tonn austur af landinu og saman með febrúarmælingunni vestan til er heildarmæling vetrarins um 278.20 þúsund tonn.
Til samanburðar þá var stærð veiðistofnsins metinn 318 þúsund tonn síðast liðið haust. Ráðgjöf hafrannsóknastofnunar byggir á samþykktri aflareglu stjórnvalda þar sem haustmæling vegur 1/3 á móti 2/3 af niðurstöðu vetrarmælinga að teknu tilliti til óvissu í matinu og til metins afráns.”