Grásleppuveiðar hefjast á föstudag

Deila:
Katrín Jakobsdóttir forsætis- og matvælaráðherra hefur undirritað reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2024.  Samkvæmt reglugerðinni verður heimilt að hefja grásleppuveiðar 1. mars.  Veiðileyfi verður gefið út til 25 samfelldra daga.
Landssamband smábátaeigenda sendi matvælaráðuneytinu erindi á dögunum þar sem skorað var á ráðherra að heimila veiðar frá 1. mars. Þar kom fram að markaður fyrir fersk grásleppuhrogn hafi farið vaxandi í Danmörku. Samfara hefur útflutningur héðan aukist jafnt og þétt og skilað góðu verði til sjómanna og útflytjenda.  Markaðurinn er þó enn takmarkaður við tímann frá áramótum og fram að páskum.  Þar sem páskar eru mjög snemma í ár, páskadagur 31. mars,  er hætt við að íslenskir sjómenn geti ekki nýtt sér eða annað markað fyrir fersk grásleppuhrogn hefjist vertíðin 20. mars.  Auk hrogna frá Íslandi selja danskir og sænskir sjómenn hrogn sín inn á þennan markað.“
Nú hefur ráðuneytið orðið við þessu.
Nokkrar nýjungar er að finna í reglugerðinni:

a.        hver löndun telst sem einn dagur og dregst þannig frá sam­felldum dögum.

b.        skylt verður að draga grásleppunet eigi síðar en tveimur sólarhringum eftir að þau eru lögð í sjó. Skulu net dregin upp og geymd ef útlit er fyrir að ekki sé hægt að            draga næstu tvo sólarhringana.

c.        óheimilt að vera með fleiri net í sjó en svo að hægt sé að draga þau upp í einni veiðiferð.

Deila: