Bleikja ehf. fær rekstrarleyfi

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Bleikju ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laugum í Rangárþingi ytra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 6. mars 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 3. apríl 2023.

Bleikja ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa í seiða- og mateldi á lax, bleikju og regnbogasilungi að Laugum, að því er segir í fréttinni.

Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Bleikju ehf. FE-1208 að Laugum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

Deila: