Bátasmiðjan Trefjar afhendir Cleopötru til Noregs

Deila:

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði hefur afhent norskum útgerðarmanni, Tom Egil Hansen, nýjan bát af gerðinni Cleopatra 36. Um er að ræða bát sem er 10,99 metrar að lengd og mælist 11 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 350hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno, Olex og Simrad og er með með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til Línu og netaveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör en lífbátur og annar öryggisbúnaður kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

Bátnurinn er kominn til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Deila: