Björguðu manni af flæðiskeri

Deila:

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ bjargaði ferðamanni af flæðiskeri utan við bæinn Ytri-Tungu á sunnanverðu Snæfellsnesi í gærkvöld. Maðurinn hafði verið að ganga fjörun og skoða seli. Hann gekk út á stein en svo flæddi að.

Björgunarsveitarmenn fóru þrír saman í línu og syntu að manninum. Nokkuð þung undiralda var á staðnum. Þeir náðu til mannsins og voru svo dregnir í land. Þegar í land var komið hafði flætt yfir skerið – ekki mátti tæpara standa.

Maðurinn var að sögn kaldur og blautur en nokkuð vel haldinn annars.

Deila: