Vélfag opnar nýja starfsstöð á Akureyri

Deila:

​Vélfag heldur áfram að stækka og opnar fimmtu starfsstöðina á Íslandi sem er staðsett við Njarðarnes 3-7 á Akureyri, þar sem Trésmiðjan Börkur var áður til húsa. Verksmiðjan sem er 2541,5 fm á stærð mun hýsa framleiðslu, lager og samsetningu auk skrifstofur.  Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins.

Þar segir að húsnæði Vélfags í næstu götu, Baldursnesi 2, verði áfram notað fyrir þróun og skrisftofur. Verið er að flytja framleiðsluvélar þaðan yfir í nýja húsnæðið.

Í fréttinni kemur jafnframt fram að gengið hafi verið frá ráðningu Elvars Stefánssonar í stöðu framleiðslustjóra hjá Vélfagi en hann hefur verið hjá fyrirtækinu frá árinu 2015. Elvar er vél- og orkutæknifræðingur frá HR auk þess að vera með sveinspróf í rennismíði.

„Það eru mjög spennandi tímar framundan og að flytja framleiðsluna yfir í stærra húsnæði er í takt við aukinn vöxt Vélfags og velgengni á undanförnum árum,” er haft eftir Elvari.

Deila: