Loðnuleit hafin í fjórða sinn

Ákveðið hefur verið að efna til nýrrar loðnuleitar, þeirra fjórðu frá áramótum. Vísir greinir frá þessu. Vonir standa til að loðna finnist í meira magni svo hægt sé að auka ráðgjöf til loðnuveiða. Í síðustu viku gaf Hafró út ráðgjöf upp á tæp 9.000 tonn.
Sigurgeir Brynjar Kristeirsson hjá Vinnslustöðunni hefur lýst þeim heimildum sem ekki upp í nös á ketti. Þeirra hlutdeild myndi nást í einni stuttri veiðiferð.
Tvö skip lögðu úr höfn á Austurlandi í gærkvöldi. „Það verður farið á tveimur skipum að austan í kvöld, Polar Ammassak og Aðalsteini Jónssyni,“ hafði Vísir eftir fiskifræðingnum Guðmundi J. Óskarssyni, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.
Vísindamenn frá Hafró eru í skipunum en leitað verður norður af Vestfjörðum.