Júlía svipt veiðileyfi í tvær vikur

Deila:

Fiskistofa hefur svipt línu- og handfærabátinn Júlíu SI 62 veiðileyfi í tvær vikur fyrir brottkast fyrir tæpu ári síðan. Skipið var þá á grásleppuveiðum. Dróni var notaður til að fylgjast með veiðunum. Mennirnir tveir um borð voru að draga net. Á 40 mínútna myndbandi mátti sjá menninga henda 26 þorskum, 4 skarkolum og einum steinbít fyrir borð.

Lög kveða afdráttarlaust á um að óheimilt sé að kasta þessum afla fyrir borð en tegundirnar lúta takmörkun á leyfilegum heildarafla.

„Allur framgangsmáti áhafnar skipsins rennir að mati Fiskistofu stoðum undir að brot hennar hafi verið framin af ráðnum hug (beinum ásetningi) í skeytingarleysi við hátternisreglur laga,” segir í ákvörðuninni.

 

Deila: