Mariam til Wisefish

Deila:

Mariam Laperashvili hefur verið ráðin sem markaðsstjóri Wisefish, hugbúnaðarhús í viðskiptalausnum fyrir aðfangakeðju sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja á heimsvísu. Frá þessu segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Hún mun að sögn gegna lykilhlutverki í að auka alþjóðlegan vöxt félagsins og styrkja vörumerki Wisefish enn frekar.

Í tilkynningunni segir að Mariam hafi víðtæka reynslu í fjölmiðlum, sölu, stafrænni þróun og markaðsmálum. Hún komi til Wisefish frá fjártæknifyrirtækinu Standby, þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðsmála með sérstaka áherslu á Bandaríkjamarkað. Áður hafi hún starfað hún sem forstöðumaður markaðs- og samskiptamála fjölmiðla Sýnar og hefur yfir árin unnið hjá íslenskum fyrirtækjum eins og Sagafilm, Reon og Tulipop og bandarískum félögum WorkAmerica og National Geographic.

Mariam er viðskiptafræðingur að mennt, lauk B.Sc. námi frá Háskóla Íslands og stundaði einnig nám við George Washington University þar sem hún sérhæfði sig í markaðsfræðum.

„Wisefish býður upp á lausn sem leysir flóknar áskoranir í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum þau verkfæri sem þau þurfa til að halda forskoti á markaðnum,“ segir Mariam. „ Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og taka þátt í spennandi vegferð sem framundan er með frábæru teymi hjá Wisefish “

„Við erum afar ánægð að fá Mariam til liðs við Wisefish. Reynsla hennar í alþjóðlegri markaðssetningu og stefnumótun mun hafa mikil áhrif á áframhaldandi vöxt okkar á erlendum mörkuðum. Sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir hröðum tæknibreytingum, þar sem stafrænar lausnir skipta sífellt meira máli til að mæta vaxandi kröfum um fjárhagslegan rekjanleika, rekstrarhagkvæmni og sjálfbærni. Skýr stefna og öflug markaðssókn eru lykilatriði í þessari þróun, og Mariam mun leiða það verkefni af miklum krafti” segir Siggeir, framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála. Mariam hefur nú þegar hafið störf.

Deila: