LS fundaði í ráðuneytinu vegna strandveiða

Deila:

Landsamband smábátaeigenda átti fund í atvinnuvegaráðuneytinu fyrir helgi vegna draga um reglugerð um strandveiðar, sem nú eru í samráðsgátt.

Í drögunum eru lagðar til þrjár breytignar. Í fyrsta lagi verði lagt til að sækja þurfi um strandveiðileyfi fyrir 15. apríl og ekki verið heimilt að sækja um leyfi eftir það tímamark. Þó verði umsækjanda heimilt að tilgreina í umsókn upphafsdag strandveiða, ef t.d. umsækjandi er að ljúka veiðum í öðrum kerfum. Verði breytingin staðfest mun fjöldi báta sem stundar strandveiðar liggja fyrir áður en strandveiðitímabilið hefst. Mun þetta fela í sér aukinn fyrirsjáanleika og einföldun í framkvæmd, að því er fram kemur í kynningu.

Í öðru lagi er lagt til að relgur um eignarhald verði hertar. Í drögunum er lagt til að eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á strandveiðitímabilinu skuli eiga að minnsta kosti meirihluta í lögaðilanum. Þannig getur strandveiðiskip í eigu lögaðila ekki haldið úr höfn nema sá sem á meira en 50% í lögaðila sé lögformlega skráður um borð í skip í gegnum lögskráningarkerfi sjómanna. Þetta hefur sennilega í för með sér að vinir, hjón eða feðgar geta ekki átt strandveiðibát saman til helminga og róið til skiptis.

Í þriðja lagi er boðað að skipstjórum strandveiðibáta verði gert skylt að senda aflaupplýsingar stafrænt til Fiskistofu áður en skipi er lagt að bryggju í löndunarhöfn að lokinni veiðiferð.

Í umsögnum við drögin benda margir á að krafa um 51% eignarhald sé útilokað að tveir menn geti rekið einn bát saman, svo sem feðgar, hjón, bræður eða vinir. LS segir í færslu á vef sínum að á fundinum hafi samtökin fært rök fyrir því að eigandi lögaðila sem sé lögskráður á fiskiskip skuli eiga jafnan hlut á við aðra eigendur í lögaðilanum.

Jafnframt var lögð áhersla á að tillögur um breytt eignarhald lögaðila myndi ekki gilda um báta í sameiginlegri eigu foreldra, barna, tengdabarna og barnabarna.  Ekki síst þar sem krafa um hertar reglur tengdar eignarhaldi væru þeim hóp óviðkomandi.

Fram kemur einnig að á fundinum hafi LS leitað svara við skilyrðum sem þyrfti að uppfylla í umsókn um strandveiðileyfi. Samkvæmt drögum að breytingu á reglugerð yrðu þær að hafa borist fyrir 15. apríl.  Í tillögum ráðuneytisins ætti að tiltaka hvenær viðkomandi ætli að hefja veiðar, auk þess hver eða hverjir munu róa viðkomandi bát í sumar.

Fiskistofa afgreiðir leyfin svo fljótt sem unnt er og fer þá yfir þau atriði sem uppfylla verður fyrir leyfinu, þ.e. bátur með gilt haffærisskírteini, stjórnendur með full réttindi og að kennitala lögaðila og þeir sem eru á bakvið hana tengist ekki öðru strandveiðileyfi.  Þar fyrir utan verður að uppfylla fyrirhugað ákvæði um eignarhald í væntanlegri reglugerð.

Á fundinum ítrekaði LS einnig ábendingar um lagabreytingu þannig að 4.000 tonna makrílpottur til smábáta yrði boðinn upp fyrir þorsk á skiptimarkaði Fiskistofu.

Þá ítrekaði LS áður framkomna ábendingu um að undanfarin sjö fiskveiðiár hefði mismunur á útgefnum heimildum í þorski og afla verið 49 þúsund tonn að meðaltali sjöþúsund tonn á ári. Af þeim sökum ætti skilyrðislaust að bæta heimildum við strandveiðar og línuívilnum til að hámarka árlegar útgefnar heimildir í þorski með veiðum.

Loks segir í fréttinni að vænta megi að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undirriti reglugerð sína um strandveiðar á næstu dögum.

Deila: