„Munu geta haldið áfram að eignast allt”

Prófessorinn Stefán Ólafsson bendir í nýrri grein á Vísi á að hagnaður sjávarútvegs hefði aðeins dregist saman um fjögur prósentustig á árabilinu 20214 til 2023, ef ný reikniregla veiðigjalda hefði gilt á tímabilinu. Hlutfall hagnaðar hefði farið úr 24% í 20%. Hann segir að breytingin sé hófleg og að sjávarútvegur muni áfram búa við hagstæðari skilyrði en flest önnur fyrirtæki í atvinnulífinsu – þrátt fyrir breytingar á veiðigjaldi.
Hann segir að meðalhagnaður fyrirtækja í viðskitpalífinu í heild hafi verið um 9%. Yfirburðastaða sjávarútvegs verði því áfram við lýði. Útvegsmenn muni áfram geta fjárfest bæði í sjávarútvegi og í öðrum greinum atvinnulífsins, vegna þess mikla umframhagnaðar sem greinin búi við.
„Útvegsmenn munu því geta haldið áfram að eignast allt sem verðmætt er á Íslandi. Kanski er boðuð hækkun full lítil, ef eitthvað er!” segir Stefán.