Maris: Tæknilausnir og þjónusta fyrir fiskeldi

Maris er leiðandi fyrirtæki í tæknilegum lausnum og þjónustu fyrir fiskeldisiðnaðinn. Innan fyrirtækisins er að finna áralanga reynslu og þekkingu í hugbúnaðargerð, iðnstýringum, töflusmíði og sérhæfðri rafmagnsvinnu í kringum eldisiðnaðinn. Jafnframt býr fyrirtækið yfir öflugu teymi sem sinnir sölu og þjónustu á dælulausnum, súrefniskerfum og allskyns eftirlitsbúnaði sem er mikilvægur iðnaðinum. Hæft starfsfólk fyrirtækisins leitar alltaf nýrra leiða til þess að þjónusta viðskiptavini á sem bestan hátt, hvort sem um er að ræða nýja tækni, sjálfvirkni eða hugbúnaðargerð.
Innlend vöruþróun mikilvæg
Maris leggur áherslu á vöruþróun og hefur tvívegis hlotið stuðning frá Tækniþróunarsjóði í þeim tilgangi. Nýverið var veitur styrkur til verkefnisins „Nákvæm fóðrun fyrir landeldi“. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða verkefni sem snýr að bættri fóðurgjöf í eldisker. Verkefnið er til tveggja ára og er unnið í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun sem kemur til með að prófa þróunarbúnaðinn í eldisstöð stofnunarinnar nálægt Grindavík. Mikil eftirvænting ríkir varðandi niðurstöður prófana og verður spennandi að sjá hvort jöfn fóðurdreifing og nákvæm vigtun á fóðri skili ásættanlegum og jöfnum vexti laxafiska. Vonast er til að þetta þróunarverkefni endi sem söluvara og verði hagkvæmur kostur til að lágmarka fóðurkostnað auk þess að jafna stærðardreifingu eldisfiska enn frekar. Nú þegar er búið að sækja um um alþjóðlegt einkaleyfi á ákveðnum hluta búnaðarins.
Súrefnisframleiðsla
Seint á síðasta ári var formlega gengið frá samningi milli Maris og SYSDVANCE varðandi sölu og þjónustu hér á landi á súrefniskerfum síðarnefnda fyrirtækisins. SYSDVANCE er í fararbroddi þegar kemur að framleiðslu á PSA og VPSA súrefniskerfum og hefur yfir 22 ára reynslu og þekkingu á þeim vettvangi. Fyrirtækið býður upp á úrval af „turnkey“ framleiðslulausnum á háhreinu PSA eða VPSA súrefni. SYSDVANCE er eitt af fáum fyrirtækjum í Evrópu sem getur boðið bæði PSA og VPSA tækni sem lausn til viðskiptavina.