Landað í Grindavík fyrir gos

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á laugardaginn. Aflinn var fyrst og fremst þorskur, ýsa og ufsi. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Þar eru stutt viðtöl við skipstjóra skipanna.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að afar vel hefði veiðst. „Við vorum á Víkinni allan tímann og veiðin var afar góð. Túrinn tók tvo sólarhringa höfn í höfn og við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það er svo sannarlega að lifna yfir þessu og fiskurinn er stór og fallegur,” sagði Jón.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tók undir með Jóni. „Nú er farið að glaðna yfir okkur köllunum. Við fórum fyrst á Pétursey í túrnum en stoppuðum þar stutt og fórum á Víkina. Þar var aðgæsluveiði. Nú flæðir vertíðarfiskurinn þarna yfir og í ár gerist það býsna seint. Þetta lítur afar vel út og nú eftir löndun ætlum við að kíkja á Selvogsbankann og kanna stöðuna þar,” sagði Birgir Þór.
Fram kemur að bæði skip hafi haldið til veiða strax að löndun lokinni en komið til hafnar í Vestmannaeyjum daginn eftir vegna brælu.