SFS gagnrýna frumvarp um hækkun veiðigjalda

Deila:

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa sent atvinnuvegaráðuneytinu ítarlegar athugasemdir við frumvarpsdrög um breytingar á lögum um veiðigjald. Samtökin telja að hækkun veiðigjalda geti haft neikvæð áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja, störf víða um land og tekjur sveitarfélaga sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á greininni.

Í athugasemdunum kemur fram að boðaðar breytingar geti dregið úr fjárfestingu og hagvexti og að arðsemi í greininni sé sambærileg við aðrar atvinnugreinar. Þá er gagnrýnt að skattstofninn byggi á uppboðsverði og að ekki hafi farið fram nægilegt mat á áhrifum breytinganna.

SFS hvetja stjórnvöld til að endurskoða frumvarpið með það að markmiði að tryggja bæði sanngjarna gjaldtöku og áframhaldandi verðmætasköpun í greininni.

Umsögn SFS

Frétt á vef SFS

Deila: