Fagnar frumvarpi um veiðigjöld

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, fagnar framlögðu frumvarpi atvinnuegaráðherra um veiðigjöld, í pistli á vef VM, í tilefni sjómannadagsins. Í pistlinum bendir hann á að í kjarasamningum sjómanna segir: Útgerðarmaður hefur með höndum sölu aflans og hefur til þess umboð áhafnar að því er aflahlut hennar varðar. Hann skal tryggja skipverjum hæsta gangverð fyrir fiskinn, þó aldrei lægra en útgerðarmaður fær, þar með talin hrogn, lifur og bein.“
Hann bendir á að VM hafi lengi vakið athygli á að verðlagning á uppsjávarfiski til íslenskra bræðslna sé ekki eðlileg. „Fyrir nokkrum árum bentum við á að erlendu skipin fengju allt að 43% hærra verð en íslensk skip fyrir sams konar afla á sama degi. Er þetta sanngjarnt?” spyr formaðurinn.
Formaðurinn leggur ekki mat á hvað teljast sanngjörn auðlindagjöld.
„Ljóst er að það er hreinn þjófnaður ef verð á afla er falsað í þeim tilgangi að lækka laun sjómanna. Útgerðarmenn hafa fullyrt að hærri auðlindagjöld muni leiða til frekari samþjöppunar í greininni en staðreyndin er sú að mikil samþjöppun hefur átt sér stað allt frá því sala á kvóta var leyfð. Sú samþjöppun tengist ekki veiðigjöldum. Í dag halda tíu stærstu útgerðirnar á yfir 50% heildarkvótans.
Á kolmunnavertíðinni í vor greiddu útgerðarmenn íslenskum sjómönnum 28-33 krónur á kíló en erlendir aðilar hafa ekki upplýst hvað þeir fá greitt fyrir sama afla þegar hann er seldur hérlendis. Á sama tíma hafa íslensk skip sem selt hafa afla sinn til Danmerkur fengið 45-49 krónur á hvert kíló. Þetta bendir óneitanlega til þess að íslensk útgerð sé að hlunnfara sjómenn sína og þar með alla þjóðina. Útgerðarmenn skulda sjómönnum og almenningi útskýringar á þessum mikla verðmun á uppsjávarafla.
Stéttarfélög sjómanna hafa árum saman bent á þetta hróplega óréttlæti. Nú er tímabært að stjórnvöld taki málið föstum tökum, krefji útgerðina skýringa og dragi hana til ábyrgðar.”