Flotinn heldur til veiða á ný

Eftir vel heppnaða sjómannadagshelgi eru skip Síldarvinnslusamstæðunnar að hefja veiðar á ný. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Haft er eftir Grétari Erni Sigfinnsyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, að frystitogarinn Blængur NK hafi haldið til botnfiskveiða í gær, og í dag stefni ísfisktogarinn Gullver til veiða frá Seyðisfirði.
Í Vestmannaeyjum er einnig hafin veiði, en samkvæmt Arnari Richardssyni, rekstrarstjóra Bergs-Hugins, hélt ísfisktogarinn Vestmannaey VE til veiða í gær. Bergur VE verður hins vegar í slipp á Akureyri fram undir miðjan júní.
Í Grindavík sagði Kjartan Viðarsson, útgerðarstjóri Vísis, að ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hafi látið úr höfn í gær. Línuskipin Sighvatur GK og Páll Jónsson GK halda síðan til veiða í dag og á morgun. Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK verður þó áfram í landi vegna óhagstæðs veðurs.
Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, Beitir NK og Börkur NK, eru enn í landi en munu fara til makrílveiða síðar í þessum mánuði.