Flotinn heldur á miðin

Deila:

Vestmannaey VE hélt til veiða að afloknu jóla- og áramótafríi um miðnætti 1. janúar að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að skipið hafi haldið rakleiðis á Víkina og hafi þar aflað vel. Gert er ráð fyrir að það komi til löndunar í dag. Bergur VE mun jafnframt halda til veiða í dag.

Gullver NS er að sögn í slipp á Akureyri þar sem öxuldráttur fer fram. Áætlað er að skipið geti haldið til veiða um komandi helgi.

Frystitogarinn Blængur NK mun halda til veiða í kvöld. Fyrsti túr ársins verður langur eða 40 dagar. Að loknum þessum fyrsta túr er ráðgert að skipið haldi til veiða í Barentshafi.

„Uppsjávarveiðiskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK eru farin til kolmunaveiða í færeyskri lögsögu. Gert er ráð fyrir að veitt verði austan við eyjarnar og eru rúmlega 300 mílur frá Neskaupstað á miðin,” segir á vefnum.

Deila: