Lönduðu 4 þúsund tonnum í maí

Deila:

Strandveiðiflotinn veiddi 4.020 tonn af þorski í maímánuði, að því er fram kemur í gagnasafni Fiskistofu. Í umfjöllun SFS í aðdraganda vertíðarinnar kom fram að búast mætti við allt að 25 þúsund tonn afla á vertíðinni. Raunin virðist ætla að verða önnur.

Meðalafli á veiðiferð reyndist 621 kíló, þegar litið er á þorsk.

736 bátar lönduðu í maímánuði. Landanir voru 6.473. Það þýðir að hver bátur nýtti að meðaltali tæplega 9 daga af 12. Tveir bátar eru reyndar með 13 landanir skráðar en aðeins er heimilt að nýta 12 daga í hverjum mánuði.

15 bátar náðu 8 tonnum af þorski í maímánuði. Benni SF landaði mestu eða 8651 kílói af þorski, samkvæmt skráningu Fiskistofu. Hann var aftur á móti langhæstur þegar kemur að umframafla – það er afla þorsks yfir leyfilegan hámarksafla.

Hér má sjá aflahæstu bátana í maímánuði, skv. gagnasafni Fiskistofu.

Benni SF 66 (2597) 8651*
Sæunn SF 155 (7180) 8213
Sævar SF 272 (2383) 8168
Sigurbjörg SF 710 (2564) 8166
Heppinn  AK 31 (7533) 8137
Birna SF 147 (7057) 8124
Dögg SF 18 (2402) 8068
Kalli SF 144 (7514) 8066
Örn II SF 70 (2491) 8046
Arnar ÁR 55 (2794) 8041
Sædís AK 121 (6395) 8024
Muggur SH 505 (1827) 8020
Heppinn ÍS 74 (7486) 8020
Hulda SF 197 (7490) 8020
Birta SH 203 (7420) 8003

*Benni SF landaði 857 kílóum af umframafla í maímánuði, ef marka má skráningu Fiskistofu, eða mest allra. Alls lönduðu 11 bátar meira en 400 kílóum umfram, samanlagt í mánuðinum.

 

Deila: