Krefjast tveggja milljarða

Vestmannaeyjabær gerir nú kröfu um tæplega tvo milljarða króna í bætur frá Vinnslustöðinni, Hugin ehf. og tryggingafélaginu VÍS, vegna skemmda sem urðu á aðalvatnslögninni til Eyja í nóvember 2023. Tjónið varð þegar uppsjávarskip í eigu Vinnslustöðvarinnar missti niður akkeri sem skemmdi lögnina. RÚV greinir frá.
Málið var þingfest í dag í Héraðsdómi Suðurlands. Þar er meðal annars byggt á því að atvikið megi rekja til stórfellds gáleysis, og að félögin beri því fulla ábyrgð á tjóninu. Í yfirlýsingu frá bænum kemur fram að Vinnslustöðin hafi hafnað beiðnum um viðræður, og hafi í stað þess reynt að takmarka mögulegar bætur við 360 milljónir króna, með vísan til sérstakrar lagaheimildar í siglingalögum.
Bæjaryfirvöld segja slíka niðurstöðu algjörlega óviðunandi og telja nauðsynlegt að leita réttar bæjarbúa fyrir dómstólum, til að koma í veg fyrir að íbúar þurfi að bera fjárhagslegt tjón af málinu.