Fyrsti makrílfarmurinn

Deila:

Vilhelm Þorsteinsson EA kemur til Neskaupstaðar snemma í fyrramálið með fyrsta makrílfarminn sem berst þangað á þessu ári. Allt er klárt í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar til að hefja vinnslu, sem er um viku fyrr en á síðasta ári.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Guðmund Þ. Jónsson, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni, og spurði hann hvernig honum litist á upphaf vertíðar.

„Mér líst alveg þokkalega á þetta,“ segir Guðmundur. „Við erum með 1.040 tonn um borð og af því eru um 15% síld. Makríllinn er stór og fallegur – um 470 grömm að meðaltali.“

Vilhelm Þorsteinsson er í veiðisamstarfi með Margréti EA og skipum Síldarvinnslunnar: Berki, Beiti og Barða. Guðmundur segir að aflinn í fyrsta hring hafi verið um 890 tonn, en Barði og Margrét hafi verið að partrolla. Að auki hafi skipið tekið eitt hol til viðbótar, um 140 tonn.

„Síðan hefur þetta gengið þokkalega hjá skipunum eftir að við lögðum af stað í land. Við erum að veiða úti í Smugu, alveg við norsku línuna, og nú fjölgar skipunum ört á miðunum. Öll íslensku skipin eru komin af stað, svo það er ljóst að það verður mikil traffík þarna næstu daga,“ segir Guðmundur.

Deila: