Afhentu stórseiði í fyrsta sinn

Í dag náðist mikilvægur áfangi í starfsemi Laxey þegar fyrsti hópur stórseiða var afhentur langtímasamstarfsaðila fyrirtækisins. Með afhendingunni hefst formlega reglubundin sala á stórseiðum sem hluti af tvíþættu tekjulíkani Laxey. Þetta kemur fram á vef fyrirtæksins.
Auk þess að framleiða lax til manneldis mun fyrirtækið nýta hluta af framleiðslugetu sinni til ræktunar og sölu á hágæða stórseiðum til annarra laxeldisfyrirtækja. Þessi blandaða nálgun eykur rekstrarsveigjanleika og gerir Laxey kleift að hefja tekjuöflun áður en fullri framleiðslu matfisks er náð.
Flutningurinn fór fram með dælingu beint úr stórseiðahúsi Laxey yfir í brunnbát samstarfsaðilans og gekk afar vel. Undirbúningur hafði verið vandlega skipulagður til að tryggja örugga og árangursríka afhendingu.
Staðsetning Laxey í Vestmannaeyjum veitir kjöraðstæður fyrir slíka afhendingu, þar sem náttúrulegt skjól og stutt siglingaleið út á opið haf gera flutninga og útflutning hagstæða.
Sala á stórseiðum getur einnig skilað viðskiptavinum ávinningi með því að stytta eldistíma í sjó og draga úr líffræðilegri áhættu. Jafnframt styrkir hún rekstraröryggi viðskiptavina.