4.000 tonna útskipun á kalkþörungum

Deila:

Fyrsta útskipun ársins fór fram í gær hjá Íslenska kalkþörungafélaginu á Bíldudal þegar fjögur þúsund tonnum af kalkþörungum var skipað um borð í flutningaskipið Wilson Huelva. Héðan sigldi skipið áleiðis til hafnarborgarinnar Castletownbere á Írlandi þar sem hluta farmsins verður skipað á land, áður en skipið heldur áfram til Lorient í Bretáníu í Frakklandi þar sem restinni verður skipað upp.
Mynd og texti fenginn af fréttasíðunni bb.is

Deila: