Mesta aflaverðmæti austfirsks skips

Deila:

Frystitogari Síldarvinnslunnar, Blængur NK, kom til Neskaupstaðar úr Barentshafinu í gærmorgun. Skipið hélt til veiða frá Neskaupstað hinn 3. júní sl. og hóf veiðar hinn 8. júní. Það var 29 daga á veiðum og var aflinn 1.421 tonn upp úr sjó, þar af 1.290 tonn þorskur. Aflaverðmætið mun vera um 500 milljónir sem er mesta aflaverðmæti austfirsks skips í einni veiðiferð hingað til.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri sagði í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að áhöfnin væri bæði glöð og þreytt eftir veiðiferðina. „Það er ekki annað hægt að segja en að veiðiferðin hafi gengið einstaklega vel. Það var góð veiði frá fyrsta kasti og vinnslan gekk með miklum ágætum frá upphafi til enda. Fiskurinn sem fékkst var líka stór og góður.

Við vorum allan tímann að veiðum norður af Múrmansk, 5-20 mílur frá 12 mílna línunni. Lengst af voru íslensku skipin þarna sex talsins og var ákaflega gott samstarf á milli þeirra. Menn voru í góðu sambandi og hjálpuðust að. Síðustu dagana vorum við hins vegar eina íslenska skipið á miðunum. Þessi góða veiði er afskaplega ánægjuleg  en í fyrra gekk ekki svona vel á þessum miðum um þetta leyti árs. Veiðin núna er í reyndinni sú besta í mörg ár á þessum árstíma og við komum því í heimahöfn glaðir og hressir,“ sagði Bjarni Ólafur.

 

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri sker tertu í tilefni
glæsilegrar veiðiferðar. Ljósm. Smári Geirsson

Að sjálfsögðu var vel tekið á móti áhöfn Blængs við heimkomuna í morgun. Meðal annars var boðið upp á dýrindis tertu. Gert er ráð fyrir að skipið haldi á ný til veiða nk. miðvikudag og þá verður fiskað á miðum hér við land.

 

 

Deila: