Útflutningsverðmæti eykst um 71% frá fyrra ári

Deila:

„Á fyrstu fjórum mánuðum ársins er útflutningsverðmæti afurða frá fiskeldi komið í 8,6 milljarða króna. Þetta er mikil aukning frá því sem verið hefur undanfarin ár. Til dæmis er þetta hærri fjárhæð en sem nemur útflutningsverðmæti eldisafurða á öllu árinu 2015 og árin þar á undan. Aukningin á fyrstu fjórum mánuðum ársins í krónum talið, miðað við fyrstu fjóra mánuði fyrra árs, nemur 71%. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 nam útflutningurinn rétt rúmum 5 milljörðum króna, en er eins og áður segir, nú kominn í 8,6 milljarða.“

Svo segir í frétt á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútveg. Þar segir ennfremur: „Sem hlutfall af heildar útflutningsverðmæti sjávarafurða frá Íslandi eru þetta ríflega 10% og hlutfallið hefur aldrei mælst hærra. Fari svo fram sem horfir má gera ráð fyrir að verðmæti útfluttra afurða frá fiskeldi verði í kringum 25 milljarðar króna á þessu ári.

Ef einungis er horft til nýliðins aprílmánaðar þá nam útflutningsverðmæti frá fiskeldi rúmum 2 milljörðum króna. Ef miðað er við apríl í fyrra er þetta aukning um 137%, en þá nam útflutningsverðmætið 872 milljónum króna. Veiking á gengi krónunnar skýrir hluta af hækkuninni. Þegar hún er tekin með í reikninginn, er aukningin um 110%. Rétt er að taka fram að hér er ekki einungis átt við útflutning á laxaafurðum heldur öllum eldisafurðum, hrogn og seiði meðtalin.

Það er því ljóst að fiskeldi er að festa sig í sessi sem mikilvægur útflutningsatvinnuvegur sem dregur mikið af gjaldeyri til landsins, tryggir byggðafestu og skapar aukin tækifæri víðs vegar um landið. Það eru góð tíðindi þegar fréttir berast af kólnun hagkerfisins . Verði skynsamlega á málum haldið má gera ráð fyrir því að fiskeldi geti orðið vegleg stoð í íslensku efnahagslífi.“ Á fyrstu fjórum mánuðum ársins er útflutningsverðmæti afurða frá fiskeldi komið í 8,6 milljarða króna. Þetta er mikil aukning frá því sem verið hefur undanfarin ár. Til dæmis er þetta hærri fjárhæð en sem nemur útflutningsverðmæti eldisafurða á öllu árinu 2015 og árin þar á undan. Aukningin á fyrstu fjórum mánuðum ársins í krónum talið, miðað við fyrstu fjóra mánuði fyrra árs, nemur 71%. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 nam útflutningurinn rétt rúmum 5 milljörðum króna, en er eins og áður segir, nú kominn í 8,6 milljarða. Sem hlutfall af heildar útflutningsverðmæti sjávarafurða frá Íslandi eru þetta ríflega 10% og hlutfallið hefur aldrei mælst hærra. Fari svo fram sem horfir má gera ráð fyrir að verðmæti útfluttra afurða frá fiskeldi verði í kringum 25 milljarðar króna á þessu ári.

Ef einungis er horft til nýliðins aprílmánaðar þá nam útflutningsverðmæti frá fiskeldi rúmum 2 milljörðum króna. Ef miðað er við apríl í fyrra er þetta aukning um 137%, en þá nam útflutningsverðmætið 872 milljónum króna. Veiking á gengi krónunnar skýrir hluta af hækkuninni. Þegar hún er tekin með í reikninginn, er aukningin um 110%. Rétt er að taka fram að hér er ekki einungis átt við útflutning á laxaafurðum heldur öllum eldisafurðum, hrogn og seiði meðtalin.

Það er því ljóst að fiskeldi er að festa sig í sessi sem mikilvægur útflutningsatvinnuvegur sem dregur mikið af gjaldeyri til landsins, tryggir byggðafestu og skapar aukin tækifæri víðs vegar um landið. Það eru góð tíðindi þegar fréttir berast af kólnun hagkerfisins . Verði skynsamlega á málum haldið má gera ráð fyrir því að fiskeldi geti orðið vegleg stoð í íslensku efnahagslífi.

 

 

Deila: