Verkfalli SÍ á gámaskipum aflýst

Deila:

Samkomulag hefur náðst á milli Sjómannafélag Íslands (SÍ) og Eimskips varðandi kaup og kjör félagsmanna SÍ sem starfa á gámaskipum félagsins í áætlunarsiglingum til og frá Íslandi. Verkfalli sem átti að hefjast þann 16. janúar 2017 hefur því verið aflýst.

Samningurinn, sem undirritaður var á þriðjudag, gildir til ársloka 2020.

 

Deila: