Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Sandgerði og Akureyrarkaupstað, Grímsey og Hrísey, skv. ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum:
Stykkishólmur
Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2017.