Fullfermi landað annan hvern dag

Deila:

Það hefur gengið vel hjá Vestmannaeyjarskipunum Bergi VE og Vestmannaey VE að undanförnu, samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar.

Fram kemur þar að skipin hafi stutt við á miðunum að undanförnu og komið að landi með fullfermi. Rætt er við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra útgerðanna á vefnum. Hann segir að veiðarnar hafi gengið eins og í sögu. Skipin landi með fullfermi annan hvern dag.

„Skipin fóru til dæmis út eftir löndun sl. fimmtudag og þau komu til löndunar á laugardagsmorgun. Farið var út eftir löndunina þá og komið á ný til löndunar í morgun. Síðan er stefnt að löndun á ný á miðvikudag. Þetta gengur svona fyrir sig og það eru allir glaðir. Veitt hefur verið í nágrenni Eyjanna, mest í Háfadýpi og á Pétursey. Aflinn á laugardag var mest ýsa og þorskur en í dag eru skipin með ýsu, þorsk og ufsa. Við reynum að keyra á ýsu og ufsa eins og við getum en þorskurinn kemur alltaf með. Þetta er vertíðartími og þrusugangur í þessu,” er haft eftir Arnari.

Deila: