Barði NK fer í togararall

Deila:

Barði NK mun taka þátt í togararalli Hafrannsóknastofnunar sem væntanlega mun hefjast síðar í þessum mánuði. Togararall hefur farið fram árlega frá 1985 og er það mikilvægur þáttur í árlegu mati á stofnstærð botnfiska við landið.

Hafrannsóknastofnun leitaði eftir tilboðum til þátttöku skipa í rallinu og varð niðurstaðan sú að auk Barða mun Ljósafell SU annast rallið ásamt hafrannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni.

„Segja má að Barði sé arftaki Bjarts NK í rallinu en Bjartur tók samtals þátt í 26 röllum og hefur ekkert skip tekið oftar þátt í togararalli. Bjartur var seldur úr landi á síðasta ári og er því fjarri góðu gamni.

Í rallinu mun Barði toga á 182 fyrirfram ákveðnum togstöðvum á svonefndu norðaustursvæði en það er svæðið frá Kolbeinseyjarhrygg austur og suður um að Íslands-Færeyjahrygg. Gjarnan hefur verið gert ráð fyrir að rallið taki um tuttugu daga,“ segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

 

Deila: