Allir ánægðir ef ufsinn gefur sig til

Deila:

Ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson AK kom til hafnar í Reykjavík snemma í morgun eftir stutta veiðiferð, þá fyrstu eftir að sjómannaverkfalli lauk. Er rætt var við Eirík Jónsson skipstjóra af heimasíðu HB Granda í gærkvöldi sagðist hann vonast til að aflinn yrði rúmlega 100 tonn.

Sturlaugur H. Böðvarsson fór í veiðiferðina sl. sunnudagskvöld, eftir að niðurstaða atkvæðagreiðslu vegna nýrra kjarasamninga lá fyrir, og að sögn Eiríks var byrjað á karfaveiðum á Melsekknum.

— Við fengum strax ágætis afla en svo reyndum við fyrir okkur á Eldeyjarbankanum þar sem aflinn var blandaðri. Við fengum þar tvö góð höl af stórufsa, sannkölluðum vertíðarfiski, og karfa og þorsk. Nú erum við í Skerjadjúpinu, austan við Búðagrunn, og aflinn er aðallega ufsi og þorskur. Það eru allir ánægðir ef ufsinn gefur sig til. Mér sýnist að þetta sé að verða góður skammtur hjá okkur en við höldum eitthvað áfram áður en haldið verður til lands, sagði Eiríkur Jónsson.

Upphaflega var gert ráð fyrir því að Sturlaugur kæmi til hafnar í gærmorgun en þeirri áætlun var breytt þar sem Ásbjörn RE var kominn með mjög góðan afla á þriðjudagskvöld. Varð það að ráði að víxla löndunardögum togaranna en Ásbjörn átti samkvæmt áætlun að koma til hafnar í morgun.
 

 

Deila: