Barði hálfnaður í rallinu

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gær en skipið er nú hálfnað í ralli Hafrannsóknastofnunar. Haldið var í rallið hinn 28. febrúar sl. og er Barða ætlað að toga á 182 fyrirfram ákveðnum togstöðvum á svonefndu norðaustursvæði.

Steinþór Hálfdanarson skipstjóri segir í spjalli á heimasíðu SVN í gær, að rallið hafi gengið einstaklega vel til þessa. „Það er búin að vera rennandi blíða allan tímann og ekkert sem hefur tafið okkur. Þetta hefur því gengið eins og best er á kosið. Nú munum við landa í Neskaupstað og fara síðan út aftur annað kvöld og taka seinni hluta rallsins. Við erum búnir fyrir norðan land en eigum eftir Digranesflakið og suður að Gerpistotu og þaðan höldum við síðan á Þórsbanka og Verkamannabanka og út að miðlínu,“ sagði Steinþór.

 

Deila: