Trefjar selja bát til Frakklands

Deila:

Á dögunum afgreiddu Trefjar nýjan Cleopatra bát til Noirmoutier á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur Christophe Corbrejaud sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið “Loup Des Mers”. Báturinn er 11 brúttótonn. “Loup Des Mers” er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 tengd ZF286IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad.
Báturinn er útbúinn til línuveiða. Báturinn er einnig útbúinn fyrir lítið troll til veiða á lifandi beitu sem notuð er við línuveiðarnar.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Noirmoutier allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna um miðjan marsmánuð. 2 menn verða í áhöfn.

Deila: